No bullshit...yeah i wish! plús blessuð togstreitan...
Jæja vertu varkár hvað þú óskar þér, vildi fyrr í vikunni að lífið væri svoldið meira spennandi og stundum er sú spenna bara ekki það sem þú vildir at all!! Helgin byrjaði í bullshiti, hef sjaldan lent í öðru eins og ég sá hliðar á mér sem ég hélt að væru ekki til, eða allaveganna það vel grafnar innst inni að það væri nú erfiðara fyrir þær að brjótast út en í raunni varð. Föstudagskvöldið var bara bullshit ætla ekki að segja meira um það þar sem ég vil helst bara gleyma því algjörlega. Segjum bara að mikið fyllirí=bullshit.. af og til. Kaldhæðnislegast var að Aivar var í bol sem stóð no bullshit! Umheimurinn var ekki að skilja skilaboðin og kvöldið fór eins og það fór....
Laugardagskvöldið var þó skárra og tilraun 2 með no bullshit bolinn skilaði betri árangri. Því viti menn lífið getur líka verið gott og stundum er í alvöru hlustað á óskir manns. Ég, Aivar og fleiri reyndum djammlífið aftur og fór bara nokkuð vel, dansað og djúsað aðeins þótt við fórum snemma heim þar sem ég er orðin of gömul víst fyrir djammstandið, fékk hausverk af hárri tónlistinni;) arg já gamla kellingu má kalla mig núna. En var samt nokkuð ánægð daginn eftir með að hafa farið svona snemma heim þar sem þynnkan og þreytan var ekki að drepa mig eins og hefur verið svo marga sunnudaga...En held að þetta sé nú bara svona tímabil sem allir ganga í gegn um, djammið og allt þar í kring er ekki eins mikið að heilla mig og það hefur gert alveg síðan í byrjun árs.
Veit þó að það tímabil mun taka enda og ég mun vilja vera allar helgar djammandi,djúsandi og dansandi til morguns aftur. En þangað til ætla ég bara að reyna að vera sátt við lífið í lægðinni. Svo get ég dansað heima hjá mér, já það er rétt ég hristi rassinn vel og lengi oft ein heima með tónlistina í botni og fílinginn líka, hver getur sagt að hann hafi ekki gert það einu sinni eða oftar að missa sig aðeins á stofugólfinu;)
Þrátt fyrir þessa lægð hjá mér, þá er ég nú samt að óska mér innst inni að fara á æðislegt djamm sem slær öll önnur djömm út, því mér finnst nú oftast skemmtilegast að dansa við aðra (þótt dansflippið ein heima slær stundum allt út). Flest djömm eru nú alveg rosa fín og alveg mjög gaman, en það er svo langt síðan maður fór á djamm sem var bara ótrúlega æðislega mindboggling skemmtilegt, allaveganna síðan í Búlgaríu. Held að lægðartímabilið mitt endist því ekki lengi, kannski fram að næstu helgi,eða þar næstu...veit ekki, veit bara að ég mun halda áfram leit minni að súperofurmegadjamminu. En verð samt alveg nokkuð ánægð með allt þar á milli. Það er bara gaman að vera með góðum vinum og hrista rassinn saman..get ekki óskað mér meira reyndar..so...
Jæja er farin að skrifa í hringi hérna, er bara svoldið conflicted, lægðartímabilið mitt er headbutting,eða á íslensku, að togast á við þörf mína fyrir að skemmta mér. Æ veit ekki er ekki bara ágætt að fara milliveginn.. allt er gott í hófi og þar á meðal er djamm og rólegt sjónvarpsgláp heima osf. Gera bara það sem manni langar mest þá stundina og er í mesta fílinginum fyrir...bara hafe fun everybody, þið sjáið mig allaveganna annað hvort á djamminu um helgar hristandi rassinn(stundum horfandi á klukkuna og pælandi í að fara heim) eða ef þið leggjist í gluggagláp(peeping toms)sjáið þig mig upp í rúmi í rólegheitunum með stóra skál af ? horfandi á tellí eða símann pælandi í hvort ég ætti að fara út að hrista rassinn..þetta mun verða þannig á meðan þetta tímabil conflictedness gengur yfir eða lengur..hver veit... please bara bare with me..
Auður veit ekkert í hvorn fótinn á að stíga lengur úffff....annaðhvort dettandi og veltandi út um allt..eða kemst ekki úr sporunum..



1 Comments:
Já það þýðir ekki að fara hoppa alltaf svona snemma af djamminu. Þú ert rétt svo komin í bæinn þegar þú ferð aftur :(
En ég var að fá þvílíkt skemmtilegt sms sent frá vit.is og í því stóð: DRUSLA.
Hahaha æ fólk er svo vangefið... ;)
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home