The party is over...
Já nú er vinnu/djammhelgi liðin og það var bara fínt ,þó djamm og vinna blandist sjaldan vel saman. Á laugardagskvöldið var farið að hitta Ölmu Gell og Krissa á sportbarinum og byrjað djammið þar, kynntist great stelpu frá Austuríki á staðnum, henni Martinu. Og vegna þess að Alma og Krissi voru orðin þreytt og vildu helst heim og ég var ekkert á heimleið, þá enduðu við og Martina bara á tjúttinu saman..
Við kíktum á nokkra staði en biðum í röð á hressó í 30 mín úff:( Þegar Martina var svo farin heim og ég komin með þýskuna á hreint... hitti ég Halldóru skvís og djömmuðum aðeins á glaumbar. Einmitt þegar hún var að fara líka heim og ég farin að gefa upp alla von um frekara djamm þessa nótt, hitti ég old vinnufriend hann Þórð og við djömmuðum saman þangað til allt lokaði. Eftir að okkur var hent út af glaumbar,þá var bara reikað um með öllu hinu fólkinu sem vissi ekki alveg hvað átti að gera af sér þarna kl 6-7 um morguninn. Og einmitt í því eirðarleysi þá gerðist dramað..ætlta að reyna að útskýra hvað gerist:
Við vorum að fara í bílinn hans að ná í eh fyrir vin hans, þegar við splittuðumst aðeins upp og ég stend ein við eh sendiferðabíl og eh rússi/serbi (+ nokkrir vinir hans) kemur og segist ætla að skutla mér heim, ég neita og segist ekki vilja fara með honum en þá tekur hann í mig(ekkert fast)en mjög ýtinn og opnar bílhurðina og ætlar bara að setja mig inn, ég berst smá um og segist alls ekki vilja fara inn, þá kemur Þórður hlaupandi til bjargar(sá þetta) og ég segi gaurnum að ég ætli með þessum.. einmitt þegar ég sleppti orðinu þá kemur annar rússi/serbi ogs hoppar á Þórð og þeir skella báðir beint á mölina, ég var bara orðlaus og Þórður líka því gaurinn ætlar bara í hann meira, alveg að tilefnislausu, en hinir rússanir/serbanir ná að róa hann niður. Vinur Þórðar kemur þá hlaupandi og segir að pabbi sinn sé lögga og hann ætli að taka bílnr þeirra niður. Þeir verða eh. hræddir og segja að allt sé í gúddý og keyra síðan í allir í burtu. Við 3 sitjum bara eftir í hálfgerðu losti.. vitum ekki alveg hvað var að gerast, en þetta varð allaveganna ekkert meira og Þórður var alveg í lagi fyrir utan smá skrámur..
Ég var allaveganna feginn að hann var þarna, því ég veit ekki hvað hefði gerst ef gaurinn hefði komið mér í bílinn(þeir voru 5!!) (I know tæbó en það er allt og sumt,erfitt með að verja mig), kannski bara keyrt mig heim eða eh.. en maður veit aldrei, stelpur ekki vera einar út í bæ,fullar á laugardagsnótt!!!
En svona var það, kvöldið byrjaði vel og endaði illa.. það gerist..
en þetta er allt og sumt í bili;)
bæjó
Auður hopeless dancer



4 Comments:
Hæ skvísa... Úff... yrði ég brjáluð ef ég myndi lenda í svona gaurum!
Ég er off til Amsterdams. Við sjáumst :)
Hæ,já þetta var svoldið veeel crazy lið...:/
Skemmtu þér geggjað vel úti,gell, já sjáumst, bæjó:)
Það er nett steikt liðið sem hangir í kringum Gaukinn.. Amsterdam og allt það, ég fer ekki þarna án lögreglufylgdar eða vélbyssu...
Hehe :)jább ég tek þig þá með næst..
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home